Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

Mál nr. 299/2023-Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 299/2023

Fimmtudaginn 7. september 2023

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 13. júní 2023, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 8. júní 2023, um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til hennar.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 24. janúar 2021 og var umsóknin samþykkt 1. mars 2021. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 8. júní 2023, var kæranda tilkynnt að greiðslur atvinnuleysisbóta til hennar væru stöðvaðar á grundvelli  58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar þar sem hún hefði ekki mætt á boðað námskeið.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 13. júní 2023. Með bréfi, dags. 15. júní 2023, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 12. júlí 2023 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 20. júlí 2023. Athugasemdir bárust ekki. Með erindi úrskurðarnefndar, dags. 15. ágúst 2023, var óskað eftir frekari gögnum frá kæranda. Sú beiðni var ítrekuð með erindi úrskurðarnefndar, dags. 24. ágúst 2023. Umbeðin gögn bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að kæra hennar varði ákvörðun Vinnumálastofnunar um synjun á greiðslum atvinnuleysisbóta. Hingað til hafi kærandi alltaf mætt á öll námskeið og fylgt þeim boðunum sem hún fái. Kærandi hafi sent inn tilkynningu um að hún kæmist ekki á viðkomandi námskeið, Try positive psychology for yourself, sem hafi verið haldið á tímabilinu 8. til 16. maí 2023 vegna skyndilegra veikinda í fjölskyldu hennar sem hafi orðið til þess að hún hafi þurft að passa viðkomandi og því ekki komist frá. Kærandi þyki mjög ósanngjarnt að fá synjun þrátt fyrir að hafa boðað forföll og látið vita um óviðráðanlegar ástæður. Kærandi sé tilbúin að mæta á önnur komandi námskeið. Hún hafi rætt það við ráðgjafa sinn stuttu áður en umræddar aðstæður hafi komið upp.

Kærandi eigi enn nokkra mánuði eftir á bótarétti, hún sé í virkri atvinnuleit vegna erfiða aðstæðna og hafi alltaf sýnt öllum boðum áhuga. Kærandi óski eftir því að mál hennar verði endurmetið og henni sýndur skilningur.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 24. janúar 2021. Með erindi, dags. 1. mars [2021], hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hennar hefði verið samþykkt. Útreiknaður bótaréttur væri 98%.

Þann 5. maí 2023 hafi kærandi verið boðuð á námskeið til aðstoðar við atvinnuleit. Námskeiðið hafi verið haldið í fimm skipti á tímabilinu 8. til 16. maí 2023. Athygli kæranda hafi verið vakin á því að skyldumæting væri á námskeiðið og að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar. Sömuleiðis hafi kæranda verið tjáð að ótilkynnt forföll kynni að leiða til þess að greiðslur atvinnuleysisbóta til hennar yrðu stöðvaðar. Boðun þessi hafi verið send á „Mínar síður“ kæranda, með tilkynningu í farsíma og á uppgefið netfang hennar. Þann 14. maí 2023 hafi Vinnumálastofnun borist tölvupóstur frá kæranda, en fram að þeim tíma hafi kærandi ekkert mætt á áðurnefnt námskeið. Að sögn kæranda hafi hún ekki getað mætt á námskeiðið daginn eftir, þann 15. maí. Dóttir hennar væri veik og kærandi hafi því þurft að annast barnabarn sitt næstu daga. Kærandi hafi óskað eftir því að hún yrði skráð á næsta námskeið. Tölvupósti kæranda hafi verið svarað daginn eftir, þann 15. maí, þar sem áréttað hafi verið að skyldumæting væri á námskeiðið. Þá hafi kærandi verið hvött til þess að mæta á þá fyrirlestra námskeiðsins sem eftir væru.

Þann [22.] maí 2023 hafi Greiðslustofu Vinnumálastofnunar borist tilkynning þess efnis að kærandi hefði ekkert mætt á umrætt námskeið. Með erindi, dags. 31. maí 2023, hafi verið óskað eftir skriflegum skýringum kæranda. Áréttað hafi verið að ef hún hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsaðgerð án gildra ástæðna gæti hún þurft að sæta viðurlögum samkvæmt 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Skýringar kæranda hafi borist Vinnumálastofnun þann 5. júní 2023. Kærandi hafi greint frá því að hún hefði því miður ekki getað mætt á námskeiðið vegna skyndilegra veikinda í fjölskyldu sinni. Að sögn kæranda hafi hún sent stofnuninni tölvupóst þann 7. maí 2023 og látið vita af forföllum sínum á námskeiðið. Með erindi, dags. 8. júní 2023, hafi kæranda verið tilkynnt að greiðslur atvinnuleysisbóta til hennar hefðu verið stöðvaðar sökum þess að hún hafi ekki mætt á umrætt námskeið. Sú ákvörðun hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 4. mgr. sömu greinar.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna. Eitt af almennum skilyrðum greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé að vera í virkri atvinnuleit, sbr. a-liður 1. mgr. 13. gr. Í 14. gr. laganna sé kveðið á um hvað felist í virkri atvinnuleit en samkvæmt [h-lið] 1. mgr. 14. gr. felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun ákveði. Ákvæði 13. gr. sé svohljóðandi:

„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“

Þá sé í 1. mgr. 14. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir kveðið á um að ráðgjafar Vinnumálastofnunar skuli hafa eftirlit með því að atvinnuleitendur fylgi eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum.

Af framangreindum lagaákvæðum sé ljóst að heimildir Vinnumálastofnunar til að boða til sín atvinnuleitendur, og sömuleiðis skyldur atvinnuleitanda til að verða við slíkri boðun, séu ríkar. Þá sé það fortakslaust skilyrði svo unnt sé að aðstoða atvinnuleitendur við að fá starf við hæfi og gefa þeim kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum að atvinnuleitendur sinni þeim boðunum sem þeim séu send. Í skilmálum sem umsækjendur um atvinnuleysisbætur samþykki þegar þeir sæki um, komi fram að viðkomandi sé upplýstur um að honum sé skylt að mæta í þau viðtöl, þá fundi, námskeið og önnur úrræði sem Vinnumálastofnun boði hann til.

Fyrir liggi að kærandi hafi ekki mætt á námskeið sem hafi verið haldið í fimm skipti á tímabilinu 8. til 16. maí 2023. Áður hafi kærandi fengið senda tilkynningu í tölvupósti, með smáskilaboðum í farsíma og á „Mínum síðum“, þar sem tilgreindar hafi verið tímasetningar og staðsetningar. Kæranda hafi sömuleiðis verið greint frá því að öll forföll þyrfti að tilkynna til stofnunarinnar án ástæðulausrar tafar. Á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi kæranda verið gert að sæta viðurlögum vegna þessa. Ákvæðið sé svohljóðandi:

„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“

Í 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í greinargerð með frumvarpi því er hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Kærandi hafi veitt skýringar á fjarveru sinni á umrætt námskeið en þær lúti að því að upp hafi komið veikindi í fjölskyldu hennar. Hún hafi af þeim sökum ekki getað mætt á námskeiðið. Þá hafi kærandi í skýringum sínum til Vinnumálastofnunar greint frá því að hún hafi þann 7. maí 2023 tilkynnt forföll sín, eða degi áður en námskeiðið hafi hafist. Í kerfum stofnunarinnar sé ekki að sjá að kærandi hafi tilkynnt forföll sín þann 7. maí, líkt og hún hafi vísað til. Fyrir liggi hins vegar tölvupóstur, dags. 14. maí 2023, þar sem fram komi að kærandi gæti ekki mætt á námskeiðið sökum veikinda innan fjölskyldu hennar, en þá hafi námskeiðið þegar verið kennt í fjögur skipti. Að mat Vinnumálastofnunar sé ljóst að slíkt geti ekki talist fullnægjandi tilkynning um forföll. Vinnumálastofnun vísi í því samhengi til þess að kæranda hafi sérstaklega verið greint frá því að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar og að ótilkynnt forföll kynnu að leiða til þess að greiðslur atvinnuleysisbóta yrðu stöðvaðar. Vinnumálastofnun árétti að námskeiðið hafi verið haldið í fimm skipti, en fyrir liggi að kærandi hafi aldrei mætt á umrætt námskeið.

Með vísan til alls framangreinds, og þeirrar ríku skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sé það mat Vinnumálastofnunar að skýringar þær sem kærandi hafi fært fram teljist ekki gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Með því að hafa hvorki mætt á umrætt námskeið né boðað forföll hafi kærandi brugðist skyldum sínum, sbr. 3. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Því beri henni að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Þegar kærandi hafi verið beitt viðurlögum með ákvörðun stofnunarinnar, dags. 8. júní 2023, hafi kærandi þegið greiðslu atvinnuleysisbóta í 26,5 mánuði á sama tímabili samkvæmt 29. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Því hafi greiðslur atvinnuleysisbóta til hennar verið stöðvaðar. Í samræmi við 4. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar skuli kærandi ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hún uppfylli skilyrði 31. gr. laganna.

Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda á grundvelli 1. mgr., sbr. 4. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna. Í 4. mgr. 58. gr. laganna kemur fram að ef hinn tryggði hafi fengið greiddar atvinnuleysisbætur í samtals 24 mánuði eða lengur á sama tímabili samkvæmt 29. gr. þegar atvik sem lýst er í 1. mgr. á sér stað skal hinn tryggði ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann uppfyllir skilyrði 31. gr.

Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 54/2006 segir meðal annars um 1. mgr. 58. gr. að ekki séu tilgreindar sérstakar vinnumarkaðsaðgerðir sem geti valdið því að hinn tryggði þurfi að sæta viðurlögum samkvæmt ákvæðinu heldur eigi það við um allar aðgerðir sem hinum tryggða sé boðið að taka þátt í til að auka líkur sínar á að fá vinnu við hæfi. Gert sé ráð fyrir að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að hinir tryggðu njóti faglegrar ráðgjafar sérfræðinga stofnunarinnar. Þannig megi ætla að þeim sem eru tryggðir innan atvinnuleysistryggingakerfisins verði boðin þátttaka í vinnumarkaðsúrræðum við hæfi en litið sé svo á að þeim sé skylt að taka þátt í slíkum úrræðum. Bregðist hinn tryggði þessum skyldum sínum leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Í gögnum málsins liggur fyrir að kærandi var boðuð á námskeið á vegum Vinnumálastofnunar sem var haldið í fimm skipti á tímabilinu 8. til 16. maí 2023. Kæranda var greint frá því að skyldumæting væri á námskeiðið og að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar á netfangið [email protected]. Jafnframt var kærandi upplýst um að ótilkynnt forföll gætu valdið stöðvun greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Kærandi hefur vísað til þess að hún hafi sent tölvupóst til Vinnumálastofnunar og boðað forföll.

Af gögnum málsins er ljóst að kærandi sendi Vinnumálastofnun tölvupóst á [email protected] þann 14. maí 2023, þegar tveir af fimm dögum voru eftir af námskeiðinu. Kærandi tilkynnti því ekki forföll með fullnægjandi hætti áður en námskeiðið hófst líkt og henni bar að gera. Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins.

Þegar kærandi var beitt viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laganna hafði hún þegið atvinnuleysisbætur frá Vinnumálastofnun í 26,5 mánuði. Því voru atvinnuleysisbætur til hennar stöðvaðar á grundvelli 4. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 og á kærandi því ekki rétt á atvinnuleysisbótum fyrr en hún uppfyllir skilyrði 31. gr. laganna, þ.e. eftir að hafa starfað samfellt á innlendum vinnumarkaði í að minnsta kosti 24 mánuði frá því að hún fékk síðast greiddar atvinnuleysisbætur. Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda á grundvelli 1., sbr. 4. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006, staðfest.

 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 8. júní 2023, um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til A, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum